Þú lærðir orðin og æfðir framburðinn. Svo byrjaðir þú setningu í búðinni eða á kaffistofunni og fólkið svaraði á ensku. Það var vel meint. Eftir nokkur svona skipti hættir maður að reyna.
Það sem vantar er staður þar sem þú talar íslensku í 45 mínútur og enginn skiptir yfir. Það er það sem ég gef þér.
Við hittumst einn á einn á netinu, vikulega eða aðra hverja viku, og tölum íslensku um lífið þitt: vinnuna, fundina, börnin, leiguna, það sem gerðist á mánudaginn. Ég leiðrétti þig þegar það hjálpar og leyfi þér að klára setninguna þegar leiðrétting myndi bara stoppa þig.
Áætlunin er byggð í kringum vinnuna þína: að skilja fundi, halda þínu í samræðum og frjósa ekki eða skipta yfir í ensku þegar talað er hratt.
Ég hef kennt íslensku síðan 2014, rúmlega 1.000 nemendum frá meira en 30 löndum, og yfir 43.000 manns fylgjast með kennslunni minni á netinu.

Kennari: Óskar Bragi Stefánsson. Fræðsluaðili: Speak Viking ehf., kt. 600521-1010, Hafnarbraut 4, 200 Kópavogi.
Þú velur hvenær þú byrjar. Námskeiðið stendur í 3 mánuði frá fyrsta tíma, með fastan kennara og fastan fjölda tíma. Þú færð reikning í krónum með öllum þeim upplýsingum sem fræðslusjóðir biðja um.
Endurgreiðsla frá stéttarfélagi
Ef þú vinnur á Íslandi getur fræðslusjóður stéttarfélagsins þíns endurgreitt stóran hluta af kostnaðinum. Nokkrir sjóðir hafa nú þegar samþykkt kennsluna mína og nokkrir nemendur mínir hafa þegar fengið endurgreitt.
Upphæðin fer eftir sjóðnum þínum og hversu lengi þú hefur greitt í hann. Sendu mér nafnið á stéttarfélaginu þínu og ég hjálpa þér að komast að því. Ég sendi reikninginn á því formi sem sjóðirnir vilja, og ef sjóðurinn þarf frekari upplýsingar frá mér svara ég þeim beint. Þú þarft ekki að skrá þig til að spyrja.
Hvað næst
Fyrsta skrefið er stutt samtal um hvar þú ert í íslenskunni og hvert þú vilt komast.
Eða sendu mér línu á oskar@speakviking.com.
You learned the words and worked on the sounds. Then you started a sentence at the shop or in the staff kitchen, and the other person answered in English. They meant well. After a few times, most people stop trying.
What's missing is a place to speak Icelandic for 45 minutes where nobody switches. That's what I give you.
We meet one to one online, every week or every second week, and we speak Icelandic about your life: your job, your meetings, your kids, your rent, what happened on Monday. I correct you where it helps and let you finish the sentence where a correction would only stop you.
The plan is built around your work: understanding meetings, holding your own in conversation, and not freezing or switching to English when it gets fast.
I've taught Icelandic since 2014, to 1,000+ students from 30+ countries, and 43,000+ people follow my teaching online.

Teacher: Óskar Bragi Stefánsson. Provider: Speak Viking ehf., kt. 600521-1010, Hafnarbraut 4, 200 Kópavogur.
You choose when to start. The course runs for 3 months from your first session, with a named teacher and a fixed number of sessions. You get an invoice in ISK with everything the education funds ask for.
Union reimbursement
If you work in Iceland, your union's education fund can pay back a large part of the cost. Several funds have already approved my lessons, and several of my students have already been paid back.
How much you get depends on your fund and how long you've paid in. Send me the name of your union and I'll help you check. I send the invoice in the format the funds want, and if your fund needs anything else from me, I answer them directly. You don't need to sign up to ask.
What happens next
The first step is a short call about where you are with Icelandic and where you want to get to.
Or write to me at oskar@speakviking.com.